Aðalfundir deilda í kvöld - skrá í rútu fyrir kl. 13

Aðalfundir deilda félagsins árið 2023 fara fram á Hótel KEA á Akureyri í kvöld, miðvikudaginn 8. febrúar, kl. 19:30. Mætið á fund, verið virk í deildinni ykkar! Veitingar í boði. Þeir sem ætla að fá far með rútunni sem fer frá Siglufirði verða að láta vita í síma 460 3620 fyrir kl. 13:00 í dag.

Fyrst verður sameiginlegur fundur allra deilda þar sem flutt verður erindi. Að því loknu munu deildirnar hver fyrir sig halda sinn aðalfund.  Þeir sem ætla að fá far með rútunni sem fer frá Siglufirði verða að láta vita í síma 460 3620 fyrir kl. 13:00 í dag.

Í ár verður kosið til tveggja ára um formann, ritara og þrjá meðstjórnendur í hverri deild fyrir sig. Einnig þarf að kjósa tvo meðstjórnendur til eins árs í Opinberu deildinni.

ATH! Boðið verður upp á akstur til Akureyrar

Þeir sem ætla að fá far með rútunni sem fer frá Siglufirði verða að láta vita í síma 460 3620 fyrir kl. 13:00 í dag.

  • Siglufjörður, rúta kl. 18:00, frá skrifstofu félagsins.
  • Ólafsfjörður, rúta kl. 18:15, frá Tjarnarborg.
  • Dalvík, rúta kl. 18:30, frá skrifstofu félagsins.

Sameinast verður í bíla frá Grenivík og Hrísey

  • Heyrið í svæðisfulltrúa eða varasvæðisfulltrúa

Mætið á fund, verið virk í deildinni ykkar!