Aðalfundir deilda félagsins hófust kl. 17:00 í dag á Hótel KEA/Múlabergi Akureyri. Félagið skiptist í þrjár starfsgreinadeildir; Iðnaðar- og tækjadeild, Matvæla- og þjónustudeild og Opinbera deild.
Nú stendur yfir sameiginlegur fundur allra deilda þar sem Sóley Björk Stefánsdóttir, verkefnastjóri í Eyjafjarðardeild Rauða krossins á Íslandi, er að segja aðeins frá Rauða krossinum og helstu verkefnum Eyjafjarðardeildarinnar.
Því næst verður boðið upp á veitingar og svo munu deildirnar hver fyrir sig halda sinn aðalfund.
Nánar verður sagt frá fundunum á morgun.