Aðalfundur Einingar-Iðju stendur nú yfir

Aðalfundur félagsins stendur nú yfir á Hótel KEA. Anna Júlíusdóttir, formaður félagsins, var að ljúka við að flytja skýrslu stjórnar og fjallaði hún þar um ýmislegt sem gerst hefur á starfsárinu. M.a. sagði hún að á starfsárinu hefði verið ákveðið að selja fjórar íbúðir á Höfuðborgarsvæðinu og kaupa sex nýjar sem teknar voru í notkun í janúar. Einnig að ákveðið hefði verið að vera með sveigjanlegri leigutíma í íbúðum félagsins á Höfuðborgarsvæðinu, en frá því í janúar hafa verið í boði dag- og helgarleigur, eins og verið hefur í orlofshúsum félagsins.

Þá fjallaði hún um kjarasamningana frá 2024 þar sem samið var um hóflegar launahækkanir en þrátt fyrir það bendi margt til þess að forsendur kjarasamninga gætu brostið í haust. "Það eru mjög mikil vonbrigði að láglaunafólk séu þau einu sem þurfa að bera ábyrgð á verðbólgu og vöxtum á meðan ríki, sveitarfélög og fyrirtæki hafi hlaupist undan ábyrgð á gerðum kjarasamningum. Staðan í þjóðfélaginu þrengir verulega að og háir vextir íþyngja þeim sem eru að greiða af lánum og gerir öðrum ókleift að komast inn á húsnæðismarkaðinn. Afleiðingarnar verða meðal annars þær að lyfja- og lækniskostnaður mætir afgangi. Niðurstöður Gallupkönnunar félagsins sem framkvæmd var  undir lok síðasta árs leiða í ljós að yngra fólkið sérstaklega eigi sífellt erfiðara með að búa sér mannsæmandi líf. Ungt fólk sé nú lengur í foreldrahúsum því fasteignakaup eru nánast óyfirstíganleg hindrun fyrir ungt fólk og leigumarkaðurinn er líka mjög erfiður og ótryggur. Vaxandi hlutfall félagsmanna hefur þurft að neita sér um læknis- og tannlæknisþjónustu vegna kostnaðar. Stór hluti þeirra sem eru með börn á leikskóla er ósáttur við breytingar á opnunartíma og/eða gjaldskrá þeirra og hafa neyðst til að breyta vinnutíma sínum. Þá hefur hlutfall þeirra sem segjast eiga erfitt með að greiða af lánum sínum ekki verið hærra síðan 2019. Þetta sýnir að okkar baráttu lýkur aldrei."

Anna sagði einnig frá Matarmenningarhátíð félagsins sem fram fór í Hofi. "Nýlega hélt félagið Matarmenningarhátíð í Hofi þar sem félagsmenn frá 12 ólíkum löndum buðu upp á smakk á mat frá sínu heimalandi. Hátíðin stóð yfir í tvo tíma og er óhætt að segja að hún hafi verið vel heppnuð. Mikið var af æðislega góðum mat í boði og frábær mæting, en um 600 gestir voru á svæðinu og nutu kræsinganna. Ég segi takk þið öll sem tókuð þátt þetta verður sannarlega endurtekið að ári."

Í lok ræðu Önnu tilkynnti hún þá ákvörðun sína að láta af störfum hjá félaginu frá og með 1. júní nk. "Í lögum félagsins er það þannig að varaformaður tekur við formennskunni og ný stjórn félagsins mun svo taka ákvörðun um hver tekur að sér hlutverk varaformanns. Ég hef ekki áhyggjur af framtíð félagsins þar sem það er valinn maður í hverju rúmi. Með sterkri stjórn félagsins, frábæru starfsfólki, öflugum trúnaðarmönnum og öllu okkar félagsfólki er framtíðin björt. Félagið stendur sterkt og treysti ég Tryggva algjörlega til að taka við formennskunni."

Ávarp Önnu má nálgast á aðalfundarvef félagsins

Núna er Hermann Brynjarsson, frá endurskoðunarfyrirtækinu Enor ehf., að fara yfir ársreikning Einingar-Iðju fyrir árið 2025.

Nánar verður sagt frá fundinum á heimasíðu félagsins á næstunni.