Aðalfundur orlofsbyggðarinnar Illugastaða 2026

Hér má sjá Tryggva, formann byggðarinnar, flytja skýrslu stjórnar á fundinum. Á innfelldu myndinni m…
Hér má sjá Tryggva, formann byggðarinnar, flytja skýrslu stjórnar á fundinum. Á innfelldu myndinni má sjá er Anna fékk afhentan smá þakklætisvott frá stjórn en hún hafði ákveðið að bjóða sig ekki fram á ný eftir að hafa setið í stjórninni frá aðalfundi árið 2012.

Í gær, fimmtudaginn 19. mars  2026, fór fram á Illugastöðum aðalfundur orlofsbyggðarinnar Illugastaða. Vegna slæms veður og lokana á vegum fór fundurinn einnig fram á rafrænan hátt í fyrsta sinn. Á fundinum fóru fram venjuleg aðalfundarstörf og flutti Tryggvi Jóhannsson, formaður byggðarinnar, skýrslu stjórnar og fór yfir ársreikningana. 

Í lok skýrslu sagði Tryggvi: "Það er alltaf ánægjulegt að koma á Illugastaði. Svæðið lítur vel út og er okkur eigendum til mikils sóma. Það er okkar góða starfsfólki að þakka, því vil ég þakka þeim Dodda, Sigrúnu og Sindra sérstaklega fyrir þeirra störf fyrir Orlofsbyggðina. Eins vil ég þakka félögum mínum í stjórninni fyrir samstarfið á árinu. Það hefur verið ánægjulegt og gott. Ég vil sérstaklega þakka Önnu Júlíusdóttir fyrir hennar störf fyrir orlofsbyggðina, en hún tók þá ákvörðun að gefa ekki kost á sér til stjórnar áfram.“

Tvær breytingar urðu á stjórn byggðarinnar á fundinum, en vitað var að meðstjórnandinn Anna Júlíusdóttir frá Einingu-Iðju myndi ekki gefa kost á sér á ný. Ásgrímur Örn Hallgrímsson frá Einingu-Iðju sem verið hefur varamaður í stjórn var kjörinn aðalmaður í hennar stað. Gunnar Magnússon frá Einingu-Iðju var kjörinn nýr varamaður stjórnar í stað Ásgríms.

Að loknu kjöri stjórnar bað Tryggvi Önnu að koma upp til að þiggja smá þakklætisvott frá stjórninni. 

Núverandi stjórn orlofsbyggðarinnar skipa: Tryggvi Jóhannsson formaður frá Einingu-Iðju, Helgi Sveinbjörn Jóhannsson varaformaður frá FVSA,  Ásgrímur Örn Hallgrímsson ritari frá Einingu-Iðju, Bergvin Bessason frá FMA og Guðjón Heiðar Sigurðsson frá Fagfélögunum. Varamenn í stjórn eru Gunnar Magnússon frá Einingu-Iðju og Þorkell Kolbeins frá AFLI starfsgreinafélagi.