Borið hefur á því að félagsmenn, hvort sem þeir starfa hjá sveitarfélagi eða ekki, hafa verið að hringja í félagið til að athuga af hverju viðkomandi hafi ekki fengið greitt úr Félagsmannasjóði.
Nýlega var greitt þessum sjóði til starfsmanna sveitarfélaga á félagssvæði Einingar-Iðju fyrir árið 2024. Auk starfsmanna sveitarfélaga fengu einnig starfsmenn, Hólmasólar, Fjölsmiðjunar, Hamra, útilífsmiðstöðvar skáta og Heilsuverndar greitt úr sjóðnum.
Félagsmenn sem starfa á almenna markaðinum eða ríki eiga ekki rétt á greiðslu úr Félagsmannasjóði.
Forsenda þess að hægt sé að greiða úr sjóðnum er að Eining-Iðja hafi bankaupplýsingar þeirra sem eiga rétt á að fá greiðslu úr sjóðnum. Því miður vantar slíkar upplýsingar hjá 112 félagsmönnum eða þá að þær eru rangt skráðar og á því eftir að greiða tæpar 3,5 milljónir úr sjóðnum. Hæsta einstaka upphæðin eru tæpar 197.000 krónur þannig að ef þú ert að vinna á þessum vinnustöðum en fékkst ekki greiðslu frá félaginu þá hvetjum við þig til að fara inn á Mínar síður félagsins og skrá inn þessar upplýsingar sem og síma og netfang.
Skráðu þig inn á Mínar síður félagsins, með rafrænum skilríkjum, þar getur þú kannað hvort við séum með réttar upplýsingar um þig og lagfært ef þörf krefur. Ef þú kemst ekki inn á síðuna eða hefur einhverjar spurningar í sambandi við Félagsmannasjóðinn þá máttu endilega senda tölvupóst á rosfrid@ein.is
Á næstunni verður aftur greitt úr sjóðnum til þeirra sem skila inn umbeðnum upplýsingum.
Félagsmenn innan Starfsgreinasambandsins, þar á meðal Einingar-Iðju, sem starfa hjá sveitarfélögum fengu í samræmi við kjarasamninga frá árinu 2019 greitt 1,5% af launum sínum í Félagsmannasjóð. Í gildandi kjarasamningi aðildarfélaga SGS við sveitarfélögin var samið um að hækka Félagsmannasjóðinn um 0,7% frá 1. apríl 2024 og fór hann því úr 1,5% í 2,2%. Auk sveitarfélaga greiða í sjóðinn Hólmasól, Fjölsmiðjan og Hamrar, útilífsmiðstöð skáta. Heilsuvernd greiddi 1,5% í sjóðinn á síðasta ári en það ákvæði var tekið út í nýjum samningi sem skrifað var undir í janúar.