Sl. föstudag var greitt úr Félagsmannasjóði til starfsmanna sveitarfélaga á félagssvæði Einingar-Iðju. Auk starfsmanna sveitarfélaga fengu einnig starfsmenn Hólmasólar, Fjölsmiðjunar og Hamra, útilífsmiðstöðvar skátar greitt úr sjóðnum.
Alls áttu 1.759 félagsmenn Einingar-Iðju rétt á að fá greiddar um 141 milljón króna úr sjóðnum að þessu sinni.
Félagsmenn sem starfa á almenna markaðinum eða ríki eiga ekki rétt á greiðslu úr Félagsmannasjóði.
Forsenda þess að hægt sé að greiða úr sjóðnum er að Eining-Iðja hafi bankaupplýsingar þeirra sem eiga rétt á að fá greiðslu úr sjóðnum. Því miður vantar ennþá slíkar upplýsingar hjá nokkrum félagsmönnum eða þá að þær eru rangt skráðar og á því eftir að greiða viðkomandi úr sjóðnum.
Hafi félagsmaður sem á rétt á greiðslum úr Félagsmannasjóði skráð bankaupplýsingar sínar á Mínar síður í Total, félagakerfi Einingar-Iðju, fékk hann greitt án þess að þurfa að gera nokkuð. Hins vegar er ekki hægt að greiða þeim félagsmönnum sem ekki hafa skráð bankaupplýsingar sínar í kerfið. Þeir félagsmenn sem telja að þeir eigi rétt á greiðslum úr Félagsmannasjóði, en hafa ekki fengið, ættu því að fara inn á Mínar síður og skrá eða uppfæra bankaupplýsingar sínar á persónublaðinu í Tótal. Ef viðkomandi félagsmenn eiga rétt á greiðslum úr sjóðnum verða þær greiddar út á næstunni.
Allir félagsmenn Einingar-Iðju eru jafnframt hvattir til að fara inn á Mínar síður í Tótal og skrá þar inn netföng, símanúmer og bankaupplýsingar, hafi þeir ekki gert það nú þegar.
Félagsmenn innan Starfsgreinasambandsins, þar á meðal Einingar-Iðju, sem starfa hjá sveitarfélögum fengu í samræmi við kjarasamninga frá árinu 2019 greitt 1,5% af launum sínum í Félagsmannasjóð. Í gildandi kjarasamningi aðildarfélaga SGS við sveitarfélögin var samið um að hækka Félagsmannasjóðinn um 0,7% frá 1. apríl 2024 og fór hann því úr 1,5% í 2,2%. Auk sveitarfélaga greiða í sjóðinn Hólmasól, Fjölsmiðjan og Hamrar, útilífsmiðstöð skáta.