Áfram 90% endurgreiðsluhlutfall styrkja

Vegna áhrifa frá Covid 19 settu fræðslusjóðirnir Landsmennt, Ríkismennt og Sveitamennt af stað átak í fræðslu sem hófst 15. mars 2020. Átakið fól í sér sérstaka samninga við fræðsluaðila um ýmis námskeið sem sjóðirnir fjármögnuðu að fullu en einnig voru reglur um almennar styrkveitingar rýmkaðar. Endurgreiðsluhlutfall styrkja hækkaði úr 75% í 90% hjá bæði fyrirtækjum og til einstaklinga.

Þann 1. júní sl. var lokadagsetning átaksins. Nú hafa hins vegar allar stjórnir sjóðanna Landsmenntar, Sveitamenntar og Ríkismenntar ákveðið að halda áfram með 90% endurgreiðsluhlutfall sem verður svo endurskoðað í lok árs 2021.

Samningar við fræðsluaðilar sem gerðir voru á síðasta ári verða hins vegar ekki endurnýjaðir að sinni. Sá þáttur átaksins verður hins vegar endurskoðaður næstkomandi haust og þörfin metin fyrir haustönnina.

Hægt er að sjá reglur vegna einstaklingsstyrkja hér: Landsmennt – Sveitamennt – Ríkismennt

Hægt er að sjá reglur vegna fyrirtækjastyrkja og styrkja til stofnana sveitarfélaga og ríkisins hér: Landsmennt – Sveitamennt – Ríkismennt