Áhersluatriði er varða vinnu barna og ungmenna

Á vef Vinnueftirlitsins má finna eftirfarandi frétt þar sem fjallað er áhersluatriði er varða vinnu barna og ungmenna, en rannsóknir sýna að ungu fólki er hættara en eldra við að lenda í vinnuslysum og óhöppum en slíkt má meðal annars rekja til skorts á þjálfun og starfsreynslu auk þess sem börn og ungmenni skortir oft þekkingu á mikilvægum þáttum er varða öryggi og heilbrigði við vinnu. 

Sumarið er fram undan og mörg ungmenni í þann mund að hefja sumarvinnu. Mikilvægt er að þau fái jákvæða upplifun af því að stíga sín fyrstu skref út á vinnumarkaðinn. Eitt af meginmarkmiðum Vinnueftirlitsins er að tryggja að allir komi heilir heim úr vinnu. Í því samhengi hafa atvinnurekendur og þeir sem reyndari eru mikilvægu hlutverki að gegna. Á það ekki hvað síst við þegar kemur að börnum og ungmennum.

Íslensk ungmenni hafa í gegnum tíðina byrjað snemma að vinna og taka að sér ýmis konar störf. Má þar nefna í matvöruverslunum, á veitingastöðum og við garðyrkju. Rannsóknir sýna að ungu fólki er hættara en eldra við að lenda í vinnuslysum og óhöppum en slíkt má meðal annars rekja til skorts á þjálfun og starfsreynslu auk þess sem börn og ungmenni skortir oft þekkingu á mikilvægum þáttum er varða öryggi og heilbrigði við vinnu. Sú skylda hvílir á atvinnurekendum að tryggja þeim örugg vinnuskilyrði, viðeigandi persónuhlífar ásamt fullnægjandi fræðslu og þjálfun til að sporna gegn slysum.

Í þeim efnum þurfum við sem störfum á innlendum vinnumarkaði að gera betur en á síðustu fimm árum (2015 – 2019) hafa samtals 316 vinnuslys verið tilkynnt til Vinnueftirlitsins í aldurshópnum 18 ára og yngri. Skiptir því máli að þeir sem reyndari eru temji sér að vera góðar fyrirmyndir og gæti ávallt að öryggi og góðum aðbúnaði á vinnustöðum.

Vill Vinnueftirlitið jafnframt hvetja atvinnurekendur til að kynna sér vel efni reglugerðar nr. 426/1999, um vinnu barna og unglinga sem gildir um vinnu einstaklinga undir 18 ára aldri.

Hvaða störf og hvenær?

Í reglugerðinni er fjallað ítarlega um hvaða störf mismunandi hópar mega vinna og hvaða störf þeir mega ekki vinna, þó sú upptalning sé ekki tæmandi. Vakin er athygli á að ungmenni undir 18 ára aldri mega ekki vinna með hættuleg tæki eða að hættulegum verkefnum, sbr. 10. grein reglugerðarinnar og viðauka. Í reglugerðinni er einnig fjallað um áhættumat, leiðbeiningar og kennslu, vinnutíma, kvöld- og næturvinnu sem og hvíldartíma.

Þá er sérstök athygli vakin á því að aðeins er heimilt að ráða börn undir 13 ára aldri til þátttöku í menningar- eða listviðburðum og íþrótta- eða auglýsingastarfsemi. Afla skal leyfis Vinnueftirlitsins áður en til ráðningar kemur vegna vinnu barna yngri en 13 ára. Meðfylgjandi er eyðublað þess efnis.

Gerð áhættumats

Samkvæmt 5. grein reglugerðarinnar er atvinnurekanda skylt að gera áhættumat og viðeigandi ráðstafanir byggðar á niðurstöðum matsins til að tryggja öryggi og heilsu ungmenna. Þetta skal gert áður en þau hefja störf og í hvert sinn sem verulegar breytingar eru gerðar á starfsskilyrðum þeirra. Vinnueftirlitið beinir því til atvinnurekenda að slíkt áhættumat verði gert áður en störf hefjast í sumar, liggi það ekki fyrir nú þegar. Leiðbeiningar um áhættumat er að finna á heimasíðu stofnunarinnar