Áherslur ASÍ vegna næsta efnahagspakka í kjölfar COVID-19

Stjórnvöld hafa boðað kynningu á nýjum efnahagspakka vegna áhrifa COVID-19. Alþýðusamband Íslands hefur kynnt ítarlegar áherslur sínar fyrir stjórnvöldum. ASÍ leggur áherslu á að þessi efnahagspakki tryggi meðal annars eftirfarandi þætti:

Fyrir fólk, ekki fjármagn

  • Aðgerðir stjórnvalda eiga fyrst og fremst að snúast um að tryggja afkomu launafólks og hagsmuni almennings.

  • Tryggja þarf nægilegt fjármagn og nauðsynlegar aðgerðir til að bæta stöðu hópa atvinnulausra og þeirra sem hafa veika stöðu á vinnumarkaði.

  • Námsmenn hafi möguleika á eðlilegum framgangi í námi.

  • Beina þarf fólki inn í menntun og framhaldsfræðslu sem virkar til framtíðar og tryggja að stuðningur við nýsköpun stuðli með beinum hætti að atvinnusköpun.

  • Stjórnvöld þurfa að sýna fram á að aðgerðir þeirra stuðli að jöfnuði, jafnrétti og sjálfbærni og að staðinn sé vörður um heimilin í landinu í gegnum efnahagslægðina.

  • Stuðningur við fyrirtæki á að vera skilyrtur því að störfum sé viðhaldið eða ný störf sköpuð og grundvallarréttindi launafólks séu virt.

  • Til að hljóta frekari stuðning þurfi fyrirtæki og eigendur að hafa nýtt eigin bjargir og undirgangast skilyrði um að greiða ekki út arð eða kaup hlut í sjálfum sér næstu tvö ár.

  • Fyrirtæki sem svindla á úrræðum stjórnvalda eiga að sæta viðurlögum.

 Afkomuöryggi fyrir alla

  • Bráðabirgðaákvæði um hlutabætur atvinnuleysistrygginga þarf að framlengja en að óbreyttu fellur það úr gildi þann 1. júní n.k.

  • Hækka þarf atvinnuleysisbætur þegar í stað en grunnbætur eru umtalsvert lægri en lágmarkslaun og þak vegna tekjutengingar er oft lágt.

  • Einstaklingar með undirliggjandi sjúkdóma og þungaðar konur sem skv. ráðleggingum heilbrigðisyfirvalda eiga að halda sig heima þurfa að falla undir lög um laun í sóttkví.

  • Tryggja þarf afkomu launafólks hjá fyrirtækjum sem skv. fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda þurfa að hætta starfsemi alfarið og foreldra sem ekki geta sótt vinnu að fullu vegna skerts skólastarfs í leik- og grunnskólum.

  • Tryggja þarf húsnæðisöryggi, meðal annars með því að hækka húsaleigubætur, flýta hlutdeildarlánum fyrir fyrstu kaupendur og fjölga almennum íbúðum.

  • Aðgerðir stjórnvalda þurfa að ná til öryrkja og ellilífeyrisþega.

  • Ríki og sveitarfélög og fyrirtæki sem vel standa verða að tryggja sumarstörf fyrir námsmenn á komandi sumri, samhliða því að boðið verði upp á styrki til námsmanna til að stunda nám á sumarönn. námsmanna til að stunda nám á sumarönn.


ASÍ mun kynna áherslur sínar nánar á næstu dögum og birta tillögur um frekari vinnumarkaðsaðgerðir, nýsköpun og menntun, stöðu heimilanna og uppbyggingu samfélagslegra innviða til framtíðar.