Allt á fullu í nýju sjúkraíbúðinni

Fyrr í maí fékk félagið afhenta nýja íbúð í Reykjavík sem verður notuð sem þriðja sjúkraíbúð félagsins á höfuðborgarsvæðinu. Fyrirhugað er að taka nýju íbúðina í notkun fyrir 1. júlí nk. en vinna er nú í fullum gangi, eins og sést á myndunum, við að gera hana klára en ákveðið var t.d. að endurnýja baðherbergi hennar með tilliti til fatlaðra, skipta um eldhúsinnréttingu og gólfefni og mála hana alla.