Á vef ASÍ segir að verð á sykri, hveiti og nokkrum súkkulaðivörum hefur lækkað milli ára en egg og mjólkurvörur hafa hækkað frá nóvember 2024. Mikill verðmunur getur verið á milli verslana, eða 11–66% á algengum bakstursvörum sem Verðlagseftirlit ASÍ skoðaði. Verðmunur getur einnig verið mikill innan verslana, á bilinu 9–31% á sambærilegum vörum. Neytendur geta því sparað mikið með því að velja ódýrara vörumerki innan sömu verslunar.
Verðþróun þurr- og bökunarvöru er misjöfn milli ára. Nokkrar vörur sem hækkuðu mikið frá nóvember 2024 til nóvember 2025 lækka nú í verði. Lækkunina má m.a. rekja til sterkara gengis krónunnar og lægra verðs á hrávörum á borð við sykur og kakó en heimsmarkaðsverð á kakói er um helmingi lægra en það var í lok árs 2024.
Verð á vörum frá Nóa Síríus hefur lækkað milli ára. Þannig hefur verð á Nóa súkkulaðiperlum, Konsum suðusúkkulaði og Nóa Síríus rjómasúkkulaðidropum lækkað um 11–13% milli ára. Verðið er þó enn um 9–21% hærra en í nóvember 2024. Lindu suðusúkkulaði hefur hækkað um 30% frá 2024 og Freyju suðusúkkulaðidropar hækkuðu um 17% frá 2024–2025 en verðið hefur staðið óbreytt sl. ár.
Meðalverð á hveiti hefur lítið breyst á tímabilinu en sykur lækkar annað árið í röð. DanSukker-sykur hefur lækkað um 25% á tveimur árum og Euroshopper-strásykur um 18%. Egg hafa aftur á móti hækkað um 12–14% frá nóvember 2024 og rjómi, smjör og mjólk um 10–23%.