Almenni markaðurinn - Kauptaxtaauki tekur gildi

Vert er að minna aftur á að Launa- og forsendunefnd kjarasamninga á almennum vinnumarkaði, sem skipuð er fulltrúum frá ASÍ og SA ákvað á fundi 9. mars sl. að kauptaxtaauki virkjist frá og með morgundeginum, 1. apríl. Kauptaxtaaukinn felur í sér að kauptaxtar kjarasamninga hækki um 0,06% frá og með 1. apríl 2026 og skýrist af því að launavísitala á almennum markaði hækkaði umfram taxtahækkanir viðmiðunartaxtans á öðru ári stöðugleikasamningsins.

Nefndinni, sem starfar samkvæmt kjarasamningum aðila á árunum 2024-2028, ber að fylgjast með framvindu efnahagslífs og mögulegum áhrifum á markmið samninga um minnkun verðbólgu og lækkun vaxta. Nefndinni ber jafnframt að leggja mat á samningsforsendur, næst í september 2026. Þá skal taka afstöðu til eftirfarandi forsendna: Að 12 mánaða verðbólga í ágúst 2026 mælist ekki yfir 4,7%. Forsenda þessi um verðlag telst þó hafa staðist ef verðbólga á 6 mánaða tímabilinu frá mars – ágúst 2026 verður 4,4% eða lægri miðað við árshraða.

Launa- og forsendunefnd hefur einnig úrskurðað um framleiðniauka vegna ársins 2025 en þróun framleiðni á samningstímanum gefur ekki tilefni til greiðslu hans.