Almenni markaðurinn - Launahækkun 1. janúar

Samkvæmt núgildandi kjarasamningi SGS og Samtaka Atvinnulífsins hækka laun á almenna markaðinum þann 1. janúar 2026.

  • Kauptaxtar hækka þá um 5,3% en að lágmarki um kr. 23.750.
  • Laun þeirra sem ekki eru á taxtalaunum, heldur almennum mánaðarlaunum, hækka um 3,5% en þó að lágmarki um kr. 23.750.
  • Þá hækka kjaratengdir liðir samningsins um 3,5% frá sömu dagsetningu.

Til nánari útskýringar þá hækka mánaðarlaun sem eru yfir kr. 678.571 um 3,5%, en laun sem eru undir kr. 678.571, en yfir lágmarkstaxta kjarasamnings, hækka um kr. 23.750 á mánuði. Þess þarf þó að gæta að laun séu eftir breytinguna að lágmarki jafngóð og skv. kauptaxta kjarasamnings. Með almennum mánaðarlaunum er átt við föst mánaðarlaun fyrir dagvinnu.

Starfsgreinasambandið hefur gefið út nýja kauptaxta vegna starfa á almennum vinnumarkaði þar sem hægt er að sjá hvernig mismunandi launaliðir hækka út frá launaflokkum og starfsaldri.

Kauptaxtar SGS fyrir starfsfólk á almennum vinnumarkaði (athugið að velja rétt tímabil)

Kauptaxtar SGS fyrir starfsfólk í veitinga-, gisti- og þjónustustarfsemi (athugið að velja rétt tímabil)

Eining-Iðja hvetur félagsmenn að fylgjast vel með að umsamdar launahækkanir skili sér inn á launareikninga og birtist með réttum hætti á launaseðli janúarmánaðar. Jafnframt eru félagsmenn hvattir til að ganga úr skugga um hvort desemberuppbót hafi skilað sér til þeirra með réttum hætti, en hana átti að greiða út í síðasta lagi 15. desember sl. Ef einhverjar spurningar vakna eru félagsmenn hvattir til að hafa samband.

Einnig er vert að benda á reiknivél þar sem sjá má yfirlit yfir launahækkanir á samningstímanum, bæði út frá kauptöxtum og almennum launum.

Launahækkanir 2024-2027

Vert er einnig að minna á að samkvæmt kjarasamningi SGS og SA þá á starfsfólk rétt á viðtali við yfirmann einu sinni á ári um störf sín, þ.m.t. frammistöðu og markmið og hugsanlegar breytingar á starfskjörum. Óski starfsmaður eftir viðtali skal það veitt innan tveggja mánaða og liggi niðurstaða þess fyrir innan mánaðar.