Vert er að minna félagsmenn á að í kjarasamningi á almenna markaðinum er ákvæði um nýjan ræstingarauka. Þetta þýðir að ræstingarfólk sem starfar á almenna markaðinum átti í fyrsta sinn að fá sérstaka viðbótargreiðslu með launum fyrir ágúst 2024 og svo mánaðarlega eftir það a.m.k. út samningstímann, þ.e. til 1. febrúar 2028.
Félagsmenn Einingar-Iðju sem starfa við ræstingar á almenna markaðinum eru hvattir til að skoða vel launaseðilinn til að tryggja að þessi ræstingaruppbót skili sér. Upphæðin á að birtast sem sérstök lína á launaseðli og ætti því að vera auðvelt fyrir félagsmenn að sannreyna að þeir hafi fengið hann greiddan.
Ræstingaraukinn skal greiddur út mánaðarlega og reiknast hann í hlutfalli við starfshlutfall, en fyrir fullt starf er hann 19.500 kr. á mánuði. Hafa ber í huga að ræstingaraukinn er ekki hluti af grunnlaunum og myndar þar af leiðandi ekki stofn fyrir yfirvinnu og aðrar álagsgreiðslur.