Á vef ASÍ segir að fólk með fötlun mun áfram verða undir á vinnumarkaði og verða óhóflega fyrir áhrifum af fátækt nema settar verði skuldbindandi reglur sem tryggja réttindi þeirra og stöðu, segir í yfirlýsingu Evrópusambands launafólks (ETUC) í tilefni þess að 3. desember ár hvert er alþjóðadagur fatlaðs fólks.
Gögn frá ESB sýna að almennt er um 51% fólks með fötlun í starfi, samanborið við 75% af heildaríbúum innan ESB. Sömuleiðis býr um 29% fatlaðs fólks við fátæktarhættu samanborið við 18% af heildaríbúum.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur birt stefnu um réttindi fatlaðs fólks, sem inniheldur aðgerðaáætlun til að bæta stöðu hópsins á vinnumarkaði. Hún felur meðal annars í sér frumkvæði um hæfileg aðlögunarúrræði á vinnustöðum og breytingar á ráðningaraðferðum.
Aðgerðirnar í áætluninni eru þó aðeins leiðbeinandi og reiða sig því einnig á velvilja atvinnurekenda. ETUC hvetur því ESB til að leggja fram bindandi aðgerðir til að bæta starfs- og lífsskilyrði fatlaðs fólks sem feli m.a. í sér: