Vegna málningarvinnu og viðhalds á Alþýðuhúsinu, Skipagötu 14, er búið að þrengja að akandi umferð fyrir utan húsið. Lokað er fyrir bílastæði og var akvegur þrengdur í 5,5 m. Búið er að yfirbyggja gönguleið meðfram austurhlið hússins. Þetta er gert til að tryggja öryggi á meðan framkvæmdir standa yfir. Við vonumst til að þetta valdi sem minnstum óþægindum og viljum biðja alla um að virða merkingar og leiðbeiningar á með verkið stendur yfir.
Framkvæmdir eru nú þegar hafnar en nú er verið að háþrýstiþvo húsið. Áætlun gerir ráð fyrir að framkvæmdum verði lokið síðla sumars.
Allir sem eiga leið í húsið eru beðnir um að sýna aðgát á meðan framkvæmdir standa yfir.