Ályktanir af 9. þingi SGS

9. þing SGS var haldið í Reykjavík í síðustu viku. Þar voru samþykktar sex ályktanir; fimm þeirra fjalla um kjaramál, byggðamál, heilbrigðismál, húsnæðismál og lífeyrismál og má finna hlekki á þær hér fyrir neðan.

Jafnframt samþykkti þingið eftirfarandi ályktun um stuðning við eldri borgara og öryrkja.

9. þing Starfsgreinasambands Íslands, haldið í Reykjavík 25. til 27. október 2023, lýsir yfir fullum stuðningi við þá kröfu Landssambands eldri borgara að grunnlífeyrir frá TR verði sambærilegur lægsta taxta SGS.

Enn fremur lýsir SGS yfir fullum stuðningi við þá kröfu að frítekjumark vegna lífeyristekna verði hækkað verulega en frítekjumarkið hefur verið óbreytt í sex ár.

Þing SGS skorar á heildarsamtök launafólks að standa þétt við bakið á sínum gömlu félagsmönnum í þeirra baráttu og að þeirra málefni verði á dagskrá í komandi kjarasamningaviðræðum við ríkisvaldið.