Ályktun af aðalfundi Einingar-Iðju

Aðalfundi Einingar-Iðju er nýlokið. Á fundinum var m.a. samþykkt samhljóða eftirfarandi ályktun.

Ályktun af aðalfundi Einingar-Iðju 2026
Í kjarasamningum sem gerðir voru 2024 var samið um hóflegar launahækkanir en þrátt fyrir það er raunveruleg hætta á að forsendur kjarasamninga bresti í haust. Það eru mjög mikil vonbrigði að láglaunafólk séu þau einu sem þurfa að bera ábyrgð á verðbólgu og vöxtum á meðan ríki, sveitarfélög og fyrirtæki hafi hlaupist undan ábyrgð á gerðum kjarasamningum.

Ráðast þarf strax í aðgerðir sem draga úr verðbólgu og lækka vexti. Núverandi staða er mikil ógn við kjarasamninga, eykur misskiptingu og skerðir lífskjör almennings.

Aðalfundur Einingar-Iðju sem haldinn var á Akureyri 22. apríl 2026 skorar á alla frambjóðendur til sveitarstjórna, sveitarfélög, ríki og fyrirtæki að axla sameiginlega ábyrgð á lausn efnahagsvandans í samstarfi við stéttarfélögin.

Láglaunafólk getur ekki eitt borið byrðarnar.