Miðstjórn Alþýðusambands Íslands samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum í gær, miðvikudaginn 3. desember 2025.
“Miðstjórn Alþýðusambands Íslands lýsir yfir alvarlegum áhyggjum af stefnuleysi stjórnvalda í málefnum innflytjenda sem m.a. birtist í afleitri stöðu íslenskukennslu fyrir fullorðna innflytjendur. Skortur á heildstæðri framtíðarsýn og viðeigandi fjármögnun hefur orðið til þess að stórum hópifólks, sem heldur uppi grunnstoðum íslensks samfélags, er enn ekki tryggð sjálfsögð réttindi og þjónusta.
Innflytjendur eru nú um fjórðungur vinnumarkaðarins en stjórnvöld hafa áratugum saman brugðist þeirri ábyrgð að tryggja þeim jöfn tækifæri, raunhæfan stuðning og aðgengi að upplýsingum og viðeigandi þjónustu. Þrátt fyrir að heildarstefna í málefnum innflytjenda hafi legið fyrir í september 2024 hefur ríkisstjórnin hvorki samþykkt né innleitt hana. Þetta er skýrt
merki um skort á pólitískri ábyrgð.
Sama ábyrgðarleysi birtist í stöðu íslenskukennslu fyrir fullorðna innflytjendur þar sem aðgengi að námi er brotakennt og fjármagn ekki í samræmi við þörf. Vilji innflytjenda til þess að læra íslensku og taka þátt í samfélaginu er ljós en án markvissra aðgerða og skýrrar umgjarðar er ekki hægt að gera kröfu um bætta íslenskufærni þeirra. Tryggja þarf að aðgengi að íslenskukennslu sé sjálfsagður réttur allra!
Þá hvetur miðstjórn ASÍ íslensk stjórnvöld til að vanda orðræðu um innflytjendur, ganga fram af ábyrgð og gæta nákvæmni í opinberri umræðu um fólk sem býr og starfar hér á landi. Innflytjendur eru óaðskiljanlegur hluti íslensks samfélags og mikilvægt er að framlag þeirra á vinnumarkaði sem annars staðar sé metið að verðleikum. Löngu er tímabært að stjórnvöld sýni ábyrgð og vinni af heilindum að samfélagi réttlætis og samstöðu en hverfi frá tilviljunum, stefnuleysi og útilokun.”