Ályktun vegna leikskólagjalda á Akureyri

Stéttarfélögin í Alþýðuhúsinu á Akureyri mótmæla því harðlega að verið sé að taka upp gjaldtöku sem …
Stéttarfélögin í Alþýðuhúsinu á Akureyri mótmæla því harðlega að verið sé að taka upp gjaldtöku sem stuðlar að ójafnrétti kynjanna.

Fyrr í dag var eftirfarandi ályktun frá Stéttarfélögunum í Alþýðuhúsinu á Akureyri sendá Akureyrarbæ; bæjarstjóra og bæjarfulltrúa og fjölmiðla.

Sjónhverfingar meirihluta bæjarstjórnar Akureyrar
Gjaldfrjálsir leikskólar sem hækka leikskólagjöld og skerða þjónustu
Nú hefur Akureyrarbær kynnt viðamiklar og flóknar breytingar á fyrirkomulagi leikskólagjalda fyrir árið 2024. Þessi nýja gjaldskrá felur í sér sex gjaldfrjálsa tíma milli kl. 8 og 14. 

Þetta útspil um gjaldfrjálsan leikskóla virðist einungis vera sjónhverfing því þjónusta sem um 95% foreldra nýta sér núna mun hækka allverulega um áramótin. Þessi útfærsla mun koma barnafólki illa, sama hvar það er staðsett í tekjustiganum. 

Fólk með fasta viðveru á lægri launum með mörg börn hafa ekki sama sveigjanleika nema minnka við sig vinnu og eru konur mun líklegri til að minnki við sig starfshlutfall til að þurfa ekki að greiða fyrir viðbótartímann. Það er mikið og erfitt kjaftshögg eftir frábært kvennaverkfall að Akureyrarbær sé að pressa á konur til að vera í hlutastörfum. 

Stéttarfélögin í Alþýðuhúsinu á Akureyri mótmæla því harðlega að verið sé að taka upp gjaldtöku sem stuðlar að ójafnrétti kynjanna. 

Stéttarfélögin mótmæla einnig harðlega að almenn álög á bæjarbúa munu hækka um 9% um næstu áramót. Þetta er mjög vont innlegg í vaxta og verðbólguumhverfið sem við búum við í dag og hvetjum við því Akureyrarbæ til að endurhugsa þessar hækkanir og sýna ábyrgð í baráttunni við að ná niður vöxtum og verðbólgu. 

Byggiðn – Félag byggingamanna
Eining-Iðja
Félag málmiðnaðarmanna Akureyri
Félag verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri og nágrenni
Kjölur - Stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu
Rafiðnaðarfélag Norðurlands
Sjómannafélag Eyjafjarðar