Ársfundur SÍMEY 2025

Frá ársfundi SÍMEY sem var haldinn í húsakynnum SÍMEY við Þórsstíg á Akureyri.
Frá ársfundi SÍMEY sem var haldinn í húsakynnum SÍMEY við Þórsstíg á Akureyri.

Ársfundur SÍMEY fór fram í gær. Á fundinum kom fram að starfsemi SÍMEY gekk almennt vel á síðasta ári og rekstrarafkoman var betri en undanfarin ár. Hér má sjá nokkrar myndir frá ársfundi SÍMEY

Á heimasíðu SÍMEY segir að eins og vera ber á ársfundi var farið yfir ýmislegt í starfi SÍMEY á liðnu ári. Valgeir Magnússon framkvæmdastjóri fór vítt yfir starfsemina og hvaða breytingum hún hefur tekið frá fyrra ári. Fram kom hjá honum að áfram er vöxtur í kennslu íslensku fyrir fólk af erlendum uppruna og einnig hefur orðið mikill vöxtur í vottuðum námsleiðum.

Valgeir skýrði einnig út lykiltölur í ársuppgjöri SÍMEY. Fram kom að tekjur á liðnu ári voru um 281 milljón króna, þar af voru tekjur vegna rekstrarsamninga 43 milljónir, tekjur af námskeiðum 187 milljónir, 36 milljónir voru verkefnatekjur og aðrar tekjur voru 12 milljónir. Rekstrargjöld á árinu námu 276 milljónum króna. Fjármagnstekjur voru um 5 milljónir og rekstrarniðurstaða ársins var því jákvæð um rétt rúmar 10 milljónir króna.

Hér eru nánari upplýsingar um liðið starfsár í SÍMEY í ársskýrslu 2024.

Ávarp stjórnarformanns

Arna Jakobína Björnsdóttir, stjórnarformaður SÍMEY, hafði ekki tök á að sitja ársfundinn og las Bragi V. Bergmann, fundarstjóri á ársfundinum, skýrslu hennar. Skýrsla Örnu Jakobínu er eftirfarandi:

Á árinu 2025 fögnum við 25 ára afmæli SÍMEY, stofnunar sem hefur verið leiðandi í símenntun og styrkingu samfélagsins hér í Eyjafirði og á landinu öllu með þátttöku sinni í verkefnum með samstarfsfélögum. Á þessum fjórðungi aldar höfum við unnið að því að hækka menntunarstig þjóðarinnar eins og lög kveða á um og aðstoðað fyrirtæki, stofnanir og almenning sem hingað hefur leitað eftir aðstoð. Helst er að nefna fyrirtækjaskóla, þarfagreiningar, náms- og starfsráðgjöf, aðgengi að vottuðum námsleiðum til að styrkja fólk í atvinnulífinu og margt annað. SÍMEY getur horft til þessa aldarfjórðungs með stolti. Ávallt hefur verið brugðist nokkuð hratt við eftir þörfum og aðstæðum hverju sinni og árangurinn er þegar á heildina er litið ótvíræður.

Þegar unnið er að samfélagsþjónustu eru nokkur atriði sem mikilvægt er að hafa í huga. Skilningur á þörfum og óskum þeirra sem þjónustan er ætluð er grundvallaratriði. Gera þarf rannsóknir eða skynja þarfir í gegnum samtal við íbúa. Að vinna með öðrum stofnunum, félögum og einstaklingum getur aukið áhrifin og tryggt að þjónustan sé heildstæð og árangursrík. Þá skiptir máli að hafa gott aðgengi til að tryggja að þjónustan sé aðgengileg öllum, óháð fjárhagslegum, félagslegum eða líkamlegum hindrunum. Mikilvægt er að fræða samfélagið um þjónustuna sem í boði er, auk þess að veita upplýsingar um hvernig hægt er að nýta sér hana. Fyrirtæki og stofnanir vita að það þarf að styrkja og þjálfa starfsfólk í allri þjónustu og verkefnum til að tryggja gæði þjónustunnar.

Rekstrarumhverfi SÍMEY hefur tekið breytingum á þessum 25 árum. Til að byrja með var eingöngu samningur við ráðuneytið en að öðru leyti var um sjálfsaflafé að ræða og áherslur SÍMEY allt aðrar en þær eru í dag. Árið 2010 markaði ákveðin tímamót með stofnun Fræðslusjóðs og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og lögum um framhaldsfræðslu sem SÍMEY fór að vinna eftir af fullum krafti. Meðal annars var farið að kenna vottaðar námsleiðir sem gefa framhaldsskólaeiningar. Gerður var samningur við Fjölmennt um að veita ráðgjöf um skipulagningu og framkvæmd náms fyrir fólk með fötlun, bæði nám sem er sérstaklega sniðið að þörfum þess og almennt nám sem það gæti stundað með öðrum. Á síðustu árum hefur síðan hlutverk SÍMEY aukist verulega í fræðslu og móttöku á nýjum Íslendingum, með m.a. íslenskukennslu og samfélagsfræðslu.

Framhaldsfræðslan hefur því miður ekki fengið þá athygli í stjórnkerfinu sem henni ber. Í mörg undanfarin ár hefur verið unnið að endurskoðun laga um framhaldsfræðsluna en þeirri vinnu hefur miðað óskaplega hægt. Ekki hefur bætt úr skák að þessi málaflokkur hefur færst á milli ráðuneyta, sem hefur hægt enn frekar á endurskoðun laganna. Ekki ætla ég að leggja mat á hvað veldur þessum seinagangi en ég kalla eftir því að stjórnvöld horfi til framhaldsfræðslunnar í auknum mæli við mótun menntastefnu í landinu. Einfaldlega vegna þess að hún gegnir gríðarlega veigamiklu hlutverki. Framhaldsfræðslan hefur í auknum mæli verið mikilvægt akkeri í fjölmenningarsamfélaginu á Íslandi og hún hefur líka verðugu hlutverki að gegna á tímum hraðra samfélagsbreytinga og gervigreindar.

Á næstu árum mun SÍMEY halda áfram að þróa og bæta þjónustuna. Áherslan verður sem fyrr á gildi SÍMEY; tækifæri, styrk, sveigjanleika og traust. Við sameinumst í því að fagna fortíðinni og horfum bjartsýn fram á veginn.

Takk fyrir að vera hluti af þessari ótrúlegu sögu, allir þeir sem hafa lagt hönd á plóg á þessari 25 ára vegferð - fyrrum stjórnarmenn, framkvæmdastjórar, starfsfólk og viðskiptafólk. Ég vil fyrir hönd stjórnarinnar þakka starfsfólki, samstarfsaðilum og stjórn SÍMEY fyrir samstarfið á liðnu starfsári.

Stjórnarfólk 2025-2027

Á ársfundinum voru eftirtalin kjörin í stjórn SÍMEY til næstu tveggja ára:

Aðalstjórn:
Arna Jakobína Björnsdóttir, fulltrúi opinberra stéttarfélaga
Sverrir Gestsson, fulltrúi almennra fyrirtækja
Þorgeir Rúnar Finnsson, fulltrúi sveitarfélaga við Eyjafjörð
Anna Júlíusdóttir, fulltrúi almennra stéttarfélaga
Halla Margrét Tryggvadóttir, fulltrúi Akureyrarbæjar
Áslaug Felixdóttir, fulltrúi opinberra stofnana
Alma Oddgeirsdóttir, fulltrúi menntastofnana

Varastjórn:
Hjördís Sigursteinsdóttir, fulltrúi opinberra stéttarfélaga

Anna María Kristinsdóttir, fulltrúi almennra fyrirtækja
Sigríður Bjarnadóttir, fulltrúi sveitarfélaga við Eyjafjörð
Halldór Óli Kjartansson, fulltrúi almennra stéttarfélaga
Hlynur Már Erlingsson, fulltrúi Akureyrarbæjar
Hrafnhildur Lilja Jónsdóttir, fulltrúi opinberra stofnana
Áslaug Ásgeirsdóttir, fulltrúi menntastofnana

Stofnaðilar SÍMEY eru Háskólinn á Akureyri, framhaldsskólarnir á Akureyri, listaskólarnir á Akureyri, sveitarfélög í Eyjafirði, stéttarfélög í Eyjafirði, félög atvinnurekenda og ýmiss fyrirtæki og stofnanir á svæðinu.