Ársfundur Stapa 2026

Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs fer fram í Menningarhúsinu Hofi Akureyri á morgun, mánudaginn 27. apríl, kl. 14:00. Félagið á rétt á að senda 42 fulltrúa á fundinn. Kosning þessara fulltrúa fer fram árlega á aðalfundi félagsins.

Ársfundurinn er opinn öllum sjóðfélögum og segir á heimasíðu Stapa að stjórn sjóðsins vonist eftir að sem flestir sjái sér fært að mæta. Atkvæðisrétt hafa þeir einir sem kosnir hafa verið á fundinn sem fulltrúar aðildarfélaga sem að sjóðnum standa.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  1. Setning ársfundar
  2. Skýrsla stjórnar, kynning ársreiknings og tryggingafræðilegs mats
  3. Fjárfestingarstefna 
  4. Hluthafastefna 
  5. Stjórnarkjöri lýst
  6. Kosning löggilts endurskoðanda
  7. Kosning utanaðkomandi aðila i endurskoðunarnefnd
  8. Starfskjarastefna
  9. Ákvörðun um laun stjórnar
  10. Val á fulltrúum í nefnd um laun stjórnar
  11. Önnur mál

Gögn fundarins: