Ársrit VIRK 2020 komið út

Ársrit VIRK 2020 er komið út á rafrænu formi sneisafullt af upplýsingum um starfsemi VIRK og greinum og viðtölum tengdum starfsendurhæfingu.

Í ársritinu er að finna greinargóðar upplýsingar um starfsemi VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs, fjölbreyttar greinar um starfsendurhæfingu og tengd viðfangsefni, viðtöl við ráðgjafa og atvinnulífstengla VIRK, viðtöl við þjónustuþega sem lokið hafa starfsendurhæfingu sem og viðtöl við samstarfsaðila VIRK.

Finna má ársritið rafrænt á vef VIRK