Ársrit VIRK 2025 er komið út, en það kemur árlega út í tengslum við ársfund VIRK sem í ár var haldinn 29. apríl sl. Í ársritinu er að finna greinargóðar upplýsingar um starfsemi VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs og árangur, fjölbreyttar greinar um starfsendurhæfingu og tengd viðfangsefni, viðtöl við ráðgjafa og atvinnulífstengla VIRK, viðtöl við þjónustuþega sem lokið hafa starfsendurhæfingu, viðtal við stjórnenda úr atvinnulífu og viðtöl við þjónustuaðila VIRK.
Finna má ársritið rafrænt vef VIRK með fyrri ársritum.
VIRK ráðgjafar í Eyjafirði
Fjórir VIRK ráðgjafar eru starfandi í Eyjafirði; Halla Sif, Helga Þyri, Katla og Nicole. Ráðgjafarnir starfa fyrir öll stéttarfélögin á svæðinu. Ráðgjafarnir hafa aðsetur á skrifstofu Einingar-Iðju á 2. hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri. Hægt er að ná í ráðgjafana í síma 535 5700.
Ágúst Sigurður Óskarsson starfar sem Atvinnulífstengill hjá VIRK og starfar fyrir öll stéttarfélög á Eyjafjarðarsvæðinu. Hann er með aðsetur á skrifstofu FVSA á 3. hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri í einn til tvo daga í viku.