Ársskýrsla Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins

Ársskýrsla Fræðslusmiðstöðvar atvinnulífsins (FA) fyrir árið 2025 er komin út á rafrænu formi. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins er samstarfsvettvangur í fullorðins- og framhaldsfræðslu á íslenskum vinnumarkaði. Alþýðusambandið hefur ávallt lagt mikla áherslu á menntun og er einn eigenda FA, ásamt SA, BSRB, SÍS og Fjármála og efnahagsráðuneytinu. Megin hlutverk FA er veita þeim sem ekki hafa lokið námi frá framhaldsskóla tækifæri til að afla sér menntunar og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði. Þar sem um er að ræða um fjórðung alls fólks á vinnumarkaði er ljóst að verkefnin eru bæði umfangsmikil og fjölbreytt.

Árið 2025 hjá FA einkenndist af mikilli eftirspurn eftir símenntun, fjölgun í námi og breyttum nemendahópi. Þátttaka í námi jókst um 9% milli ára og alls luku 2.934 einstaklingar námi árið 2025. Þróunin endurspeglar aukna eftirspurn eftir sveigjanlegu námi sem tengist beint störfum og atvinnuþátttöku. Erlendir ríkisborgarar eru nú meirihluti þátttakenda, eða 56%, sem undirstrikar mikilvægi aðgengilegra og fjölbreyttra náms.

Samhliða þessu hefur áhersla færst í auknum mæli yfir á starfstengt nám sem nú er stærsti flokkur náms. Nemendur sækjast í síauknum mæli eftir námi sem skilar beinum ávinningi á vinnumarkaði.

Árið 2025 staðfestir að framhaldsfræðslan er ein af lykilstoðum menntakerfisins, fyrir fólk sem hefur ekki lokið námi á framhaldsskólastigi.  Hún eykur þátttöku á vinnumarkaði, styrkir hæfni og styður við samfélagslega inngildingu.

Það endurspeglast í orðum Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, í ávarpi sínu um mikilvægt hlutverk Fræðslumiðstöð atvinnulífsins í íslensku samfélagi. „ Hún er sameiginlegur vettvangur aðila vinnumarkaðarins til að styrkja menntun fólks, hvort sem það er í starfi, í atvinnuleit eða í starfsendurhæfingu“.

En áskorunin er skýr: án aukinnar fjárfestingar í símenntun og skýrari stefnumótunar er hætta á að framhaldsfræðslan og það starf sem henni er ætlað að vinna nái ekki að fylgja eftir þeirri miklu eftirspurn sem nú blasir við.

Lesið ársskýrsluna hér