ASÍ á ferð um landið - fundur á Akureyri í dag

Nú stendur yfir hringferð forseta ASÍ þar sem stjórnum, trúnaðarráðum og þingfulltrúum á næsta ASÍ þing er boðið til samtals um efni 47. þings ASÍ sem fram fer dagana 14. til 16. október nk.

Yfirskrift 47. þings ASÍ er að þessu sinni „Framtíð vinnu og verkalýðsbaráttu“ og verður áhersla lögð á að horfa á hvernig hraðar tæknibreytingar, loftslagsbreytingar og staða heimsmála er að móta og breyta aðstæðum og tækifærum launafólks.

Haldnir verða alls 10 fundir um landið á tímabilinu 31. ágúst til 16. september.

Fundur dagsins mun fara fram á Akureyri og var eftirfarandi stéttarfélögum á Norðurlandi boðin þátttaka.

  • Eining – Iðja
  • Fél. verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri
  • Félag málmiðnaðarmanna Akureyri
  • Framsýn, stéttarfélag
  • Byggiðn
  • Þingiðn
  • VM
  • Rafvirkjafélag Norðurlands
  • Sjómannafélag Ólafsfjarðar
  • Sjómannafélag Eyjafjarðar
  • Verkalýðsfélag Þórshafnar