ASÍ - Ályktun miðstjórnar vegna Wolt

How can I read this news in another language?
Jak mogę przeczytać tę wiadomość w innym języku?

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands lýsir yfir eindregnum stuðningi við kjarabaráttu og aðgerðir sendla heimsendingarfyrirtækisins Wolt. Störf þeirra tilheyra skipulögðum íslenskum vinnumarkaði og miðstjórn hvetur sendla fyrirtækisins til að leita til ASÍ og aðildarfélaga þess til að tryggja þeim stöðu og kjör samkvæmtreglum laga og kjarasamninga. 

ASÍ skorar á fyrirtæki hérlendis sem starfrækja stafræna vinnuvettvanga að skrá starfsmenn sína réttilega sem launafólk, gerast aðilar að og fylgja gildandi kjarasamningum um kjör þeirra og réttindi. Íslensk verkalýðshreyfing mun aldrei samþykkja félagsleg undirboð sem grafa undan kjarasamningsbundnum kjörum og réttindum launafólks og leikreglum skipulagðs vinnumarkaðar. 

Uppgangur hark-hagkerfisins er alþjóðlegt vandamál og víða er sótt að kjörum og réttindum launafólks. Miðstjórn Alþýðusambands Íslands lýsir einnig yfir stuðningi við sameiginlega yfirlýsingu norrænna stéttarfélaga um störf á stafrænum vinnuvettvöngum og tekur undir þá afstöðu að störf í hark-hagkerfinu verði að tryggja fólki mannsæmandi afkomu, örugg starfsskilyrði og félagslega vernd.  

ASÍ hefur ítrekað fjallað um gerviverktöku og þá þróun sem fylgt hefur uppgangi hark-hagkerfisins, meðal annars í tengslum við starfsemi Wolt hér á landi. Stafræn stjórnun og ný rekstrarform mega aldrei verða leið til að færa ábyrgð og áhættu atvinnurekstrar yfir á einstaklinga. Fólk sem í reynd starfar sem launafólk á að njóta þeirra réttinda og þeirrar verndar sem því fylgir, óháð því hvernig vinnunni er miðlað eða sambandið skilgreint. 

Yfirlýsingu samtakanna má lesa í heild hér: 

Norræn samtök launafólks: Vinna á stafrænum verkvöngum er aðeins sjálfbær ef hún tryggir fólki mannsæmandi lífsviðurværi 

Það er æ algengara að launafólk fái verkefnum úthlutað í gegnum smáforrit. Þeir sem starfa á slíkum stafrænum verkvöngum hafa engan fastan vinnustað og vinna oft einir, samkvæmt verkefnabundnum samningum, gegn lágum greiðslum og gjarnan án þeirrar verndar sem launafólk nýtur almennt. 

Vinna á stafrænum verkvöngum (e. platform work) hefur haft í för með sér margvísleg vandamál um allan heim: skattasniðgöngu, undanbrögð frá lögum og reglum, tilraunir til að komast hjá kjarasamningum, félagsleg undirboð og fyrirtæki sem neita að axla ábyrgð sem atvinnurekendur. Norðurlöndin hafa ekki farið varhluta af þessari þróun. 

Flest fyrirtæki sem reka stafræna verkvanga eru í eigu stórra bandarískra fyrirtækja eða njóta fjárhagslegs stuðnings bandarískra fjárfesta. Þau eru ekki aðeins að umbreyta atvinnugreinum heldur setja einnig þrýsting á norræna vinnumarkaðsmódelið. 

Á Norðurlöndum leggja stéttarfélög áherslu á sanngjörn laun, öflug réttindi launafólks og kjarasamninga – ekki kerfi sem byggist á óöryggi og láglaunastörfum. 

Norræn stéttarfélög hafa leitast við að bæta kjör þeirra sem starfa á stafrænum verkvöngum með norrænu aðferðinni: með kjarasamningum. 

En til þess að raunverulegar kjaraviðræður geti átt sér stað þurfa stéttarfélög viðsemjendur sem eru reiðubúnir til að ganga til samninga af heilindum og án þess að niðurstaðan sé fyrirfram ákveðin eða skilmálar fyrirskipaðir. Eins og staðan er nú er hins vegar lítið um þannig viðsemjendur og aðeins fáir kjarasamningar hafa náðst. 

Sem dæmi hafa nokkur norræn verkalýðsfélög átt í kjaraviðræðum við verkvangsfyrirtækið Wolt árum saman, en viðræðurnar hafa strandað þar sem fyrirtækið hefur ekki verið reiðubúið til að bæta starfskjör sendla með fullnægjandi hætti. 

Við erum staðföst í þeirri sannfæringu okkar að norræna vinnumarkaðsmódelið – með skipulögðum vinnumarkaði, öflugri vernd launafólks og sterkri hefð fyrir kjarasamningum – sé lykillinn að því að sjálfbær fyrirtæki, launafólk og samfélagið í heild geti vaxið og dafnað. 

Norræna nálgunin gagnvart nýrri tækni felst ekki í því að leggjast gegn henni, heldur að launafólk og verkalýðsfélög taki þátt í að móta hvernig tæknin er nýtt og hvernig vinnu með henni er háttað. Þessi norræna nálgun hefur með góðum árangri sameinað nýsköpun og aukna framleiðni við mannsæmandi starfskjör og jöfnuð. 

Undirrituð stétarfélög og samtök launafólks styðja við eða taka sjálf þátt í beinum viðræðum við fyrirtæki sem reka stafræna verkvanga, með það að markmiði að tryggja sanngjörn laun, örugg starfskjör og viðeigandi félagslega vernd. 

Við skorum sameiginlega á öll fyrirtæki sem reka stafræna verkvanga að taka þátt í raunverulegum og málefnalegum viðræðum og virða þau gildi og starfshætti sem norræna vinnumarkaðsmódelið byggist á. 

Yfirlýsing á ensku: https://www.nordictransport.org/en/platform-workers/