ASÍ - Beint streymi: Framtíð vinnu og verkalýðsbaráttu

47. þing Alþýðusambands Íslands hefst í dag og í tilefni af því verður haldið málþing sem verður opið öllum milli kl. 10:00 og 13:00 í dag í hátíðarsal Hilton Reykjavík og í beinu streymi. Yfirskrift þingsins að þessu sinni er „Framtíð vinnu og verkalýðsbaráttu“. Þar verður horft fram á veginn og rætt hvernig verkalýðshreyfingin ætlar að mæta þeim áskorunum sem fylgja tækni- og loftslagsbreytingum.

Meðal ræðumanna eru Mariana Mazzucato, prófessor við University College London og einn þekktasti hagfræðingur samtímans, og Luc Triangle, aðalframkvæmdastjóri Alþjóðasambands verkalýðsfélaga (ITUC), sem er málsvari um 200 milljóna launafólks um allan heim. Bæði flytja þau fjarerindi. Rætt verður um hvernig gervigreind mun breyta störfum og réttindum launafólks, hvort hún skapi ný tækifæri eða nýjan ójöfnuð, og hvaða möguleika fólk á Íslandi hefur til að bæta kjör sín milli kynslóða.

Nálgast má beint streymi frá málþinginu hér