ASÍ - Fjárlögin og fólkið

Finnbjörn A. Hermannsson skrifar:

Síðustu misserin hefur framganga íslenskra ráðamanna vakið sívaxandi undrun hjá okkur mörgum innan verkalýðshreyfingarinnar. Sem forseti Alþýðusambandsins hitti ég marga, innan og utan hreyfingarinnar, og ég treysti mér til að fullyrða, að sú skoðun er að verða æ algengari að núverandi forustusveit ríkisstjórnarinnar sýni kjörum fólksins í landinu lítinn áhuga. Þetta sinnuleysi um hag og afkomu almennings birtist skýrt og greinilega í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2024 sem Alþingi samþykkti um liðna helgi.

Forgangsröðunin í frumvarpinu er svo brengluð að hreinum undrum sætir. Tekjuöflun ríkisins er allri beint gegn almenningi. Skatta- og gjaldahækkanir eru sem fyrr úrræði stjórnmálamanna sem búa ekki yfir þeirri færni sem nauðsynleg er við farsæla hagstjórn. Á sama tíma er heilu atvinnugreinunum hlíft við eðlilegri skattheimtu og fjármagnið má auðvitað ekki snerta nú sem fyrr. Þetta sýnir enn og aftur að stjórnvöld eru að verja velferðarkerfi ríkasta 5% hluta þjóðarinnar.

Um leið og ríkisvaldið hefur forgöngu um að skerða kjör almennings verða skatta- og gjaldahækkanir til að blása í glæður verðbólgu sem aftur leiðir til þess að vaxtakjör munu vísast fremur versna en hitt um leið og verðbætur éta upp eign skuldara í húsnæði sínu.

Minna fæst fyrir hærri skatta

Á sama tíma fær almenningur sífellt minna fyrir hækkandi skatta. Tilfærslukerfi til almennings, sem eru grundvöllur þess velferðarsamfélags er lætur sig kjör hinna efnaminni einhverju varða, hafa skipulega verið holuð að innan á undan liðnum árum og enn skal hert á þeim spellvirkjum.

Húsnæðisbætur lækka, vaxtabætur lækka, barnabætur lækka.

Nýir og sértækir skattstofnar eru lagðir á bifreiðar og húsnæði almennings. Raunar er það svo, að nær allar opinberar álögur hækka og fyrir því munu landsmenn fá að finna á næstu vikum. Sífellt hærri gjöld og skattar skila fólkinu í landinu engu. Því veldur fráleit forgangsröðun og hörmuleg hagstjórn.

„Stöðugleikinn” margfrægi er og var vitanlega frá upphafi skáldskapur; leikrit sem snerist um völd og forréttindi valinna hópa, fyrirtækja og atvinnugreina. Fjárlagafrumvarp næsta árs staðfestir þetta mat.

Heilbrigð forgangsröðun

Verkalýðshreyfingin hefur margoft kynnt ítarlegar tillögur um hvernig hlífa má almenningi við sífellt auknum álögum og varða þær í stuttu máli einkum breytta skattlagningu fjármagnstekna, tekjutilflutning, auðlindagjöld, hækkun bankaskatts og eðlilega skattlagningu ferðaþjónustu.

Þessi forgangsröðun er heilbrigð og hún er réttlát. Hún beinir skattakrumlunni að þeim stöðum þar sem fjármagninu hefur verið safnað og stjórnmálamenn hafa ákveðið að njóta skuli eins konar „friðhelgi” gagnvart samfélaginu og þörfum þess á sama tíma og hin útvöldu raka saman auði á kostnað almennings.

Fjárlagafrumvarp 2024 sýnir almenningi verkefnið og beinir sterku ljósi að andstæðingunum; þeim stjórnmálamönnum og hagsmunaöflum sem láta sér í léttu rúmi liggja versnandi kjör launafólks og raunverulega fátækt þeirra sem minnst hafa handa í millum.

Frumvarpið lýsir firringu gagnvart fólkinu í landinu.

Höfundur er forseti Alþýðusambands Íslands