How can I read this news in another language?
Jak mogę przeczytać tę wiadomość w innym języku?
Á heimasíðu ASÍ segir að fimmtán aðildarfélög Alþýðusambands Íslands gerðu 1.209 launakröfur fyrir hönd félagsfólks síns árið 2025, samtals að fjárhæð um 1,4 milljarða króna. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu ASÍ, Brotastarfsemi á vinnumarkaði — Greining á launakröfum aðildarfélaga ASÍ 2025.
Skýrslan er sú þriðja sem ASÍ gefur út um launaþjófnað, en sambærilegar úttektir komu út árin 2019 og 2023. Niðurstaðan er sú sama og áður: kjarasamningsbrot og launaþjófnaður eru viðvarandi vandamál og ekkert bendir til þess að dregið hafi úr alvarleika þeirra.
Helstu niðurstöður
Skýrslan tekur aðeins til þeirra mála sem leiddu til formlegrar launakröfu. Ætla má að fjöldi brota komi aldrei til kasta stéttarfélaga, meðal annars vegna þess að launafólk þekkir ekki réttindi sín eða óttast afleiðingar þess að gera athugasemdir við starfskjör.
Í skýrslunni er bent á að löggjafinn hafi á undanförnum árum styrkt úrræði á afmörkuðum sviðum, meðal annars með keðjuábyrgð, reglum um atvinnurekstrarbann og formlegum samstarfsvettvangi eftirlitsaðila. Þær aðgerðir hafi þó ekki dugað til að draga úr launakröfum.
Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, segir í ávarpi sínu í skýrslunni að óprúttnir atvinnurekendur geti enn haft fjárhagslegan ávinning af því að halda eftir launum fólks. „Þar liggur stærsta gatið í regluverkinu sem nauðsyn er að byrgja fyrir,” segir hann og bætir við: „Viðurlög gegn launaþjófnaði eru löngu tímabær.”
Skýrsluna má lesa hér fyrir neðan:
Brotastarfsemi-a-vinnumarkadi-2025