Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, skrifaði grein sem birtist á Vísi í dag þar sem hann fagnar niðurstöðum viðræðna um forsendur kjarasamninganna.
„Þessi niðurstaða er afrakstur víðtæks samráðs innan verkalýðshreyfingarinnar. Formenn og forystufólk aðildarfélaganna hafa lagt sitt af mörkum og starfsfólk Alþýðusambandsins hefur lagt gríðarlega vinnu í greiningar, undirbúning, útfærslur og viðræður. Fyrir þá fagmennsku og seiglu vil ég færa þeim sérstakar þakkir.
Við eigum að gleðjast yfir sigrunum og segja frá þeim. Ekki til að hefja einstaklinga á stall heldur vegna þess að árangur skiptir máli. Hann sýnir félagsmönnum hvað sameiginlegt afl þeirra getur áorkað og minnir okkur á hvers vegna sterk verkalýðshreyfing skiptir máli.“