ASÍ - Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs

Fram kemur á vef ASÍ að gosdrykkir og brauðmeti hækkuðu snarpt um áramótin og Bónus og Krónan hækka verð talsvert meira en Prís. Þótt Prís sé langódýrasta matvöruverslunin hækkaði verðlag þar meira árið 2025 en í Bónus og Krónunni. Hækkanirnar koma fyrr fram en í janúar í fyrra. Þetta kemur fram í samanburði Verðlagseftirlits ASÍ á verðþróun matvöru í lágvöruverðsverslunum nú í janúar. 

 

Ölgerðin, Coca-Cola og Myllan hækka 

Borin voru saman verð þann 17. janúar síðastliðinn í Prís, Bónus og Krónunni og mátuð við verð á sömu vörum þann 10. desember síðastliðinn. Verð á vörum frá Ölgerðinni hafði hækkað um 3-4% að meðaltali í Bónus, Krónunni og Prís. Verð á vörum frá Coca-Cola á Íslandi hafði ekki hækkað í Prís en hækkaði um rúmlega 4% í Krónunni og rúmlega 5% í Bónus. Vörur frá Myllunni hækkuðu í verði um hálft annað prósent í Bónus að meðaltali, um 3% í Krónunni en ekki í Prís. Eru þetta veigamestu hækkanirnar frá byrjun ársins. 

 

Vörur frá Kaffitár hækkuðu um rúmlega 5% í Bónus. Tekið skal fram að sumar birgjahækkanir koma inn á ólíkum tímapunktum eftir verslunum. Til dæmis höfðu vörur Kaffitár hækkað í verði þann 20. janúar í Krónunni um svipaða upphæð, en það var þremur dögum eftir verðkönnunina. Poki af Morgundögg möluðu kaffi kostar nú 1.349kr í Bónus og 1.350kr í Krónunni, en kostaði í ársbyrjun 1.279kr í Bónus og 1.280kr í Krónunni. 

Bónus og Krónan byrja árshækkunina snemma 

Hækkun á matvöruvísitölu Bónus og Krónunnar milli 10. desember og 17. janúar nemur 0,47%, sem gera 4,6% á ársgrundvelli – hærra en árshækkunin í verslununum tveimur, sem nam 3,7% í Krónunni og 4,2% í Bónus. (Hækkun á ársgrundvelli segir hversu mikil hækkunin væri ef hún ætti sér stað alla mánuði ársins.) 

Í Prís breyttust verð lítið – á ársgrundvelli hækkaði verðlag þar um 0,8%. Undanfarið ár hefur verðlag þar hins vegar hækkað meira, eða um 5,7%. 

 

Prís langódýrast en Bónus og Krónan á krónumun 

Iðulega er krónumunur á verði Bónus og Krónunnar, nú sem fyrr. Í 953 verðsamanburðum af 1.091 var Krónan einni krónu dýrari en Bónus, eða í 87% tilfella. 

Bónus var að meðaltali 4,7% dýrara en Prís þegar 474 vörur eru skoðaðar sem finna mátti í báðum verslunum. Krónan var 6,0% dýrari en Prís í samanburði á 601 vöru og 0,6% dýrari en Bónus í samanburði á 1.091 vöru.