ASÍ - Mýtan um töfralausnir ríkissáttasemjara

Á vef ASÍ segir að í nýlegri skoðanagrein sinni, Kaffiboðið í Karphúsinu, fjallar Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, um hlutverk ríkissáttasemjara og reynir að draga upp samanburð við önnur Norðurlönd, en á röngum forsendum.

Því fer fjarri að ríkissáttasemjari sé gestgjafi í kaffiboðum eins og framkvæmdastjórinn gefur í skyn. Flestum ríkissáttasemjurum hefur tekist með skynsemi og lempni að laða aðila á vinnumarkaði til samninga og unnið í því efni aðdáunarvert og gott starf með örfáum undantekningum sem ekki er ástæða til að nefna

Óskoraður réttur til vinnustöðvunar
Réttur samtaka launafólks til þess að þrýsta á um kröfur sínar í vinnudeilum með boðun vinnustöðvana fellur undir grundvallarmannréttindi sem varin eru af fjölmörgum evrópskum og alþjóðlegum mannréttindasáttmálum og hafa lagagildi hér á landi. Hér vísast m.a. til Félagsmálasáttmála Evrópu, Alþjóðasamnings um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi og samþykkta Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 87 og 98. Um þetta er blessunarlega lítið deilt og horfa verður á allar mögulegar og ómögulegar breytingar á íslenska vinnumarkaðslíkaninu með hliðsjón af þessu.

Sé horft til annarra Norðurlanda er það rétt að valdheimildir sáttasemjara þar eru a.m.k. sumpart aðrar en hér. Hvort þær eru meiri er eitthvað sem eflaust má deila um en mestu skiptir að þær eru sprottnar upp úr annars konar veruleika. Mikilvægast er hér að hafa í huga að valdheimildir sáttasemjara eru aðeins einn hluti af miklu stærra og flóknara vinnumarkaðsumhverfi þar sem fléttast inn venjur, hagfræði, landafræði og menning viðkomandi lands. Framkvæmdastjóri SA lætur vera að fjalla um þessi grundvallaratriði.

Að mörgu leyti eru Norðurlöndin fyrirmynd í málefnum vinnumarkaðar. Stjórnvöldum á Norðurlöndum hefur auðnast í áranna rás að koma á og viðhalda nokkuð góðum félagslegum stöðugleika, jöfnuði og fyrirsjáanleika sem eðli málsins samkvæmt hefur mikil áhrif á vilja launafólks og traust til að ganga til kjarasamninga án mikilla átaka. Hins vegar er það beinlínis rangt að þar ríki ávallt sátt og samlyndi um kaup og kjör.

Samstaða um hlutverk ríkissáttasemjara
Lykill að velgengni vinnumarkaðslíkans Norðurlandanna er að samtök launafólks og atvinnurekendur hafa komist að sátt um uppbyggingu kerfisins. Þetta er kjarni máls sem framkvæmdastjóri SA kýs einnig að leiða hjá sér. Hlutverk ríkissáttasemjara þar er með þeim hætti sem raun ber vitni vegna þess að aðilar hafa í sameiningu ákveðið að svo skuli vera. Á þeim forsendum hafa þeir verið reiðubúnir að framselja hluta af valdi sem þeir hafa samkvæmt framangreindu. Slíkt hefur vissulega að einhverju leyti verið til umræðu hér á landi áður og mun væntanlega skjóta upp kollinum aftur. Augljóslega verður slík umræða ekki til lykta leidd nema að allir þættir vinnumarkaðsumhverfisins séu ræddir.

Að líta svo á að töfralausn sé falin í því að auka valdheimildir ríkissáttasemjara án þess að uppbyggileg umræða hafi átt sér stað við samtök launafólks sem fara með hinn eiginlega kjarasamningsrétt og valdheimildir er í skásta falli óábyrgt og ekki líklegt til að skapa sátt á vinnumarkaði til lengri tíma.