Á heimasíðu ASÍ segir að Alþýðusamband Íslands fagni nýlegum úrskurði sem felur í sér mikilvægt fordæmi fyrir heimildum slökkviliðs til brunavarnaeftirlits í íbúðarhúsnæði og brunavarnir í varúðarskyni ef rökstuddur grunur leikur á að brunavarnir séu í ólagi. Með úrskurðinum er staðfest að sömu heimildir og gilda um brunavarnaeftirlit í atvinnuhúsnæði ná nú einnig til íbúðarhúsnæðis óháð eignarhaldi eða rekstrarformi.
Á undanförnum árum hafa ASÍ og stéttarfélögin lagt mikla áherslu á vinnustaðaeftirlit þar sem öryggi og réttindi launafólks eru í forgrunni. Í þeirri vinnu hefur sjónum verið beint að húsnæðisaðstæðum starfsmanna sem búa í húsnæði á vegum atvinnurekenda. Slíkt húsnæði er víða nýtt fyrir erlenda starfsmenn sem koma tímabundið til starfa á Íslandi, sérstaklega í greinum á borð við mannvirkjagerð, landbúnað, sjávarútveg, matvælavinnslu og ferðaþjónustu. Í þeirri vinnu hefur komið í ljós að aðbúnaður fólks í sameiginlegu húsnæði, svokölluðum herbergjahótelum, er víða ófullnægjandi og getur skapað alvarlega hættu, meðal annars vegna ófullnægjandi brunavarna.
Með þessum úrskurði styrkjast heimildir slökkviliðsins til að koma í veg fyrir slíka áhættu og tryggja að lágmarksöryggi sé virt þar sem fólk býr. Er þetta er mikilvægur áfangi í baráttunni fyrir bættum réttindum og mannsæmandi lífsskilyrðum verkafólks, ekki síst erlendra starfsmanna sem oft eru í berkjaldaðri stöðu á vinnu- og húsnæðismarkaði.
Frétt RÚV um úrskurðinn má lesa hér: Sögulegur úrskurður fyrir leigumarkaðinn.