Vert er að benda félagsmönnum á að ASÍ-UNG hefur sett í loftið nýja heimasíðu þar sem settar verða inn fréttir, pistlar, næstu viðburðir, hlaðvarpsþættir og margt fleira.
ASÍ-UNG er ungliðasamtök ASÍ sem vinna fyrir réttindi, lífskjör og framtíðarmöguleika félagsmanna á aldrinum 16–35 ára.
Endilega kíkið á nýju heimasíðuna.