ASÍ - Upptaka: Framtíð vinnu og verkalýðsbaráttu

Mynd af vef ASÍ
Mynd af vef ASÍ

47. þing Alþýðusambands Íslands hófst í dag og í tilefni af því var haldið málþing opið öllum. Yfirskrift þingsins að þessu sinni er „Framtíð vinnu og verkalýðsbaráttu“. Þar var horft fram á veginn og rætt hvernig verkalýðshreyfingin ætlar að mæta þeim áskorunum sem fylgja tækni- og loftslagsbreytingum.

Meðal ræðumanna voru Mariana Mazzucato, prófessor við University College London og einn þekktasti hagfræðingur samtímans, og Luc Triangle, aðalframkvæmdastjóri Alþjóðasambands verkalýðsfélaga (ITUC), sem er málsvari um 200 milljóna launafólks um allan heim. Bæði fluttu þau fjarerindi. Rætt var um hvernig gervigreind mun breyta störfum og réttindum launafólks, hvort hún skapi ný tækifæri eða nýjan ójöfnuð, og hvaða möguleika fólk á Íslandi hefur til að bæta kjör sín milli kynslóða.

Upptöku af málþinginu má finna hér