Átt þú eftir að svara Gallup? - færð þú vinning?

Vert er að minna enn og aftur á að Gallup er að framkvæma könnun um ýmis atriði sem snerta kjör, viðhorf og aðstæður félagsmanna Einingar-Iðju og AFLS starfsgreinafélags. Könnunin er jafnframt happdrættismiði því allir sem taka þátt geta unnið veglega vinninga.  20 þátttakendur lenda strax í happdrættispotti, 10 frá hvoru félagi, og fá vinningshafar tilkynningu um leið og þeir hafa svarað könnuninni. Um er að ræða gjafakort að verðmæti kr. 15.000. Enn eru nokkrir vinningar eftir!

Það getur borgað sig að taka þátt! 
Síðustu ár hafa annað hvort allir eða vel flestir sem dregnir voru út svarað þannig að flestir vinningar síðustu ára hafa gengið út. Þetta þýðir samt að nokkrir félagsmenn Einingar-Iðju hafa misst af því að fá vinning upp á kr. 15.000. 

Átta veglegir vinningar eru í boði þegar könnuninni er lokið. Tveir vinningar að upphæð  kr. 150.000 og tveir kr. 50.000 auk fjögurra vikudvala í orlofsíbúðum félaganna.

Það er von félagsins að þeir sem valdir voru til þátttöku gefi sér tíma til að svara þegar leitað verður til þeirra því það er áríðandi að fá sem nákvæmastar niðurstöður og að allir svari svo hægt verði að nýta niðurstöðurnar í þágu þekkingar og til hagsbóta fyrir félagsmenn.

Nú þegar hafa þó nokkur fjöldi svarað könnuninnni á netinu en starfsmenn frá Gallup hringja í þá félagsmenn sem enn eiga eftir að svara. Bæði er hægt að svara símleiðis og í gegnum netið með því að fara inn á vefslóð sem gefin er upp í bréfinu sem félagsmennirnir fengu og nota lykilorð sem þeim var úthlutað. 

Þín svör skipta máli – takk fyrir að taka þátt!

Með þátttöku þinni hefur þú áhrif á þjónustu og stefnu félagsins.  Álit þitt skiptir okkur máli. 

Niðurstöður fyrri kannana má finna hér