Atvinnutenging VIRK

How can I read this news in another language?
Jak mogę przeczytać tę wiadomość w innym języku?

Atvinnutenging VIRK er samstarf VIRK við fyrirtæki og stofnanir í tengslum við ráðningar starfsfólks.

Markmiðið er að ljúka starfsendurhæfingu á farsælan hátt með því að útvega einstaklingum störf við hæfi og fyrirtækjum gott starfsfólk ásamt því að halda uppi virkri atvinnuþátttöku á Íslandi og stuðla að heilbrigðu samfélagi. 

Gott samstarf við fyrirtæki er grundvöllur farsællar atvinnutengingar. Atvinnulífstenglar VIRK gegna lykilhlutverki í því að tengja einstaklinga við fyrirtæki eða stofnanir út frá óskum beggja og aðstoða einstaklinginn, en ekki síður vinnustaðinn, við aðlögun og endurkomu til vinnu. 

Samstarf við fyrirtæki og stofnanir gengur vel og viðtökur eru góðar. Hundruðir einstaklinga fá vinnu á hverju ári með aðstoð atvinnulífstengla VIRK.

VIRK leitar stöðugt eftir samstarfi við ný fyrirtæki og stofnanir sem geta skráð sig/sent inn fyrirspurn eða haft samband við atvinnulífstengla VIRK og fengið nánari upplýsingar.