Nýlega bauð Eining-Iðja bæjarfulltrúum á Akureyri og fulltrúum þeirra flokka sem tilkynnt hafa framboð í sveitarstjórnarkosningum í vor í heimsókn á skrifstofu félagsins á Akureyri til að fara yfir með þeim helstu niðurstöður úr nýjustu Gallup könnun félagsins þar sem m.a. kom í ljós að yngra fólkið sérstaklega eigi sífellt erfiðara með að búa sér mannsæmandi líf. Ungt fólk sé nú lengur í foreldrahúsum því fasteignakaup eru nánast óyfirstíganleg hindrun fyrir ungt fólk og leigumarkaðurinn er líka mjög erfiður og ótryggur.
Tryggvi varaformaður segir að heimsóknin hefði tekist mjög vel. Mæting var með ágætum og þarna átti sér stað gott spjall um hin ýmsu mál sem hefði staðið yfir í tæpa tvo tíma.
Auk þess að fara yfir niðurstöður könnunarinnar var einnig rætt um gjaldskrárhækkanir hjá bænum. Mjög góðar umræður urðu um um niðurstöður könnunarinnar og þá sérstaklega varðandi heilbrigðismál, húsnæðismál og leikskólamál.
Aðilar voru sammála um að auka samtalið og að nauðsynlegt væri að hittast oftar. Tryggvi sagði að Eining-Iðja væri meira en tilbúin að bjóða bæjarstjórn og bæjarfulltrúum árlega í svona samtal.