Að gefnu tilefni þá viljum við minna félagsmenn á það sé stranglega bannað að reykja og veipa í orlofskostum sem félagið býður upp á. Einnig er bannað að reykja og veipa á svölum íbúða félagsins á Höfuðborgarsvæðinu sem og við innganga í húsin.
Við viljum líka minna félagsmenn á að ganga vel frá íbúðum og orlofshúsum eftir notkun.
Því miður er staðan sú að kvörtunum vegna umgengni og lélegra þrifa fer fjölgandi. Félagar! Höfum í huga að orlofskostir félagsins eru sameign okkar allra og því er nauðsynlegt að við sameinumst um að ganga um með því hugarfari.
Tvö fyrirtæki hafa umsjón með íbúðum félagsins á höfuðborgarsvæðinu. Leigjandi þarf ekki að þrífa íbúðina eftir leigutíma, en auðvitað þarf að skila henni full frágenginni og snyrtilegri.
Félagsmenn þurfa sjálfir að þrífa orlofshús félagsins áður en þeim er skilað. Orlofshúsin eru sameign okkar allra og er mikilvægt að hafa það að leiðarljósi að skilja við þau eins og þið viljið koma að þeim. Verði vanhöld á þrifum að mati umsjónarmanns á viðkomandi svæði, má búast við að leigutaki þurfi að borga þrifagjald.
Við minnum á að brot á umgengnisreglum getur orðið til þess að félagsmaður lendir á bannlista og getur þá ekki leigt íbúð eða orlofshús, auk þess sem viðkomandi getur þurft að borga sekt.
Allar upplýsingar um leiguna koma fram á samningi sem viðkomandi fær þegar hann leigir íbúð eða orlofshús hjá félaginu.