Á vef ASÍ segir að vikumeðaltal lægstu bensínverða hefur hækkað um 24 krónur (tæp 13%) frá upphafi árs. Hækkunin kom meira og minna öll fram í mars, í framhaldi af stigvaxandi hernaðaraðgerðum gegn Íran. Verðhækkanir eru einungis að hluta komnar fram í mælingum Hagstofunnar, en verð hefur hækkað um 9% frá því verðtaka vegna vísitölu neysluverðs lauk þann 13. mars. Þó má vænta þess að vopnahlé í Íran muni leiða til lækkana á bensínverði en verð á heimsmarkaði hefur nú þegar lækkað um 15% frá því það var samþykkt í gær.
Drjúgar hækkanir í mars
Í upphafi marsmánaðar var 95 oktana bensín ódýrast hjá Costco (168,1 kr./l), en dýrast hjá Olís í Hrauneyjum (219,2 kr./l). Því munaði rúmlega 51 krónu á hæsta og lægsta fáanlega verði. Þann 7. apríl var eldsneytið enn ódýrast hjá Costco (207,1 kr./l) og dýrast í Hrauneyjum (251,2 kr./l), en munurinn hefur dregist saman og er nú rúmar 44 krónur.
Verðhækkanir hjá Costco voru umtalsvert umfram aðra söluaðila, eða um tæpar 39 krónur. Lægstu verð hækkuðu á bilinu 27 til 30 krónur frá mars hjá söluaðilum með fleiri en eina dælustöð. Dýrustu stöðvar söluaðila hækkuðu um sömu krónutölu, nema í tilfelli Atlantsolíu. Þar giltu sérstök afsláttarkjör frá 30. mars til 7. apríl og lítraverð það sama á öllum stöðvum. Sé litið framhjá afsláttarkjörum nam hækkun dýrustu Atlantsolíustöðva 26,5 krónum á tímabilinu 1.–29. mars.
Allt að 1.080 krónum dýrara að fylla 30 lítra bensíntank
Áhrif verðhækkana síðustu vikna eru umtalsverð á rekstrarkostnað bifreiða. Kostnaður við að dæla 30 lítrum af bensíni var á bilinu 5.133-6.576 kr. í upphafi árs þar sem ódýrasta verðið var að finna í Costco og hæsta verðið var hjá Olís. Eftir verðhækkanir er ódýrasta verðið enn að finna í Costco en bensíntankurinn kostar 1080 krónum meira en í byrjun árs. Olís er enn með dýrasta verðið en þar nemur hækkunin 960 kr.
Áhrif hækkana ekki að fullu komin í verðbólgumælingar
Verð á bensíni hækkaði um 5,8% í mars samkvæmt Hagstofunni og námu áhrif á vísitölu neysluverðs 0,1% til hækkunar. Verð á dísel hækkaði um 6,9% á sama tímabili. Verðtaka Hagstofunnar stóð yfir á tímabilinu 9-13. mars en frá þeim tíma hefur meðaltal lægstu verða á bensíni hækkað um rúmlega 8%. Því er ljóst að bein áhrif verðhækkana eru einungis komin að hluta fram í mælingum Hagstofunnar til grundvallar vísitölu neysluverðs.
Tíðni og umfang breytinga misjöfn
Tíðni verðbreytinga var misjöfn milli söluaðila. Atlantsolía og Orkan breyttu verði oftast, eða um 13 sinnum frá mars, á meðan breytingar hjá N1 voru um 11 og hjá Costco, Olís og ÓB um tíu talsins.[1]
Einnig var munur á umfangi breytinga. Hver einstök verðbreyting var að jafnaði stærri hjá Costco en öðrum söluaðilum, sem skýrir að hluta hvers vegna heildarhækkun þar var meiri þrátt fyrir færri breytingar.
Þetta bendir til ólíkra aðferða í verðlagningu, þar sem sumir söluaðilar aðlaga verð oftar í smærri skrefum á meðan aðrir breyta sjaldnar en í stærri skrefum.
Vopnahlé í Íran leitt til lækkana á heimsmarkaði
Vopnahléssamningar náðust milli Bandaríkjanna og Írans, seint í gær. Samkomulagið, felur í sér tímabundið hlé á hernaðaraðgerðum og opnun Hormuz sundsins. Áhrifa þess gætir nú þegar á heimsmörkuðum, en Brent hráolía hefur nú þegar lækkaði um 15%. Hlutabréfamarkaðir hafa hækkað víða og verð á jarðgasi lækkað samhliða olíuverði.
Engu að síður er óvissan enn veruleg. Vopnahléið er tímabundið og viðræður um varanlegt samkomulag óhafnar. Greiningaraðilar benda jafnframt á að truflanir á flutningsleiðum og aðfangakeðjum muni ekki hverfa á einni nóttu. Það gæti haldið uppi orkuverði á næstunni, miðað við það sem áður var.
[1] Tíðni er áætluð út frá völdum ódýrustu stöðum hvers söluaðila. Þær eru: Atlantsolía Baldursnes Akureyri, Costco Iceland Kauptún, N1 Fiskislóð, ÓB Akureyri Hlíðarbraut, Olís Akureyri, Orkan Dalvegur.