Eins og áður hefur komið fram á síðunni þá er Bjarg íbúðafélag að byggja 16 leiguíbúðir við Langamóa 1 og 3 í Móahverfi á Akureyri.
Í síðustu viku fór fram úthlutun í nokkrar íbúðir í Langamóa, en fyrstu íbúðirnar eiga að vera tilbúnir til leigu í júlí og svo í október/nóvember. Selma Unnsteinsdóttir, Sviðsstjóri á leigusviði hjá Bjargi, mætti norður til að úthluta.
Anna formaður og Tryggvi varaformaður fóru með Selmu og skoðuðu íbúðirnar og leist þeim mjög vel á það sem þau sáu. Fallegar og vel hannaðar íbúðir á góðum stað í nýjasta hverfi bæjarins, Móahverfi. Eining-Iðja óskar öllum þeim sem var úthlutað íbúð til hamingju.
Á heimasíðu Bjargs segir að undirbúningur sé hafinn við 12 íbúðir í Langamóa 13-15.
Nánari upplýsingar um íbúðirnar má finna inni á vef Bjargs íbúðafélags.
Bjarg íbúðafélag er sjálfseignarstofnun rekin án hagnaðarmarkmiða. Félaginu er ætlað að tryggja tekjulágum einstaklingum og fjölskyldum á vinnumarkaði, sem eru fullgildir félagsmenn aðildarfélaga ASÍ eða BSRB, aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu. Um er að ræða svokölluð leiguheimili að norænni fyrirmynd.
