Eins og áður hefur komið fram á síðunni þá er Bjarg íbúðafélag að byggja 16 leiguíbúðir við Langamóa 1 og 3 í Móahverfi á Akureyri. Vakin er athygli á að nú er opið fyrir umsóknir í Langamóa 3 en úthlutanir munu hefjast eftir páska, í apríl 2026.
Fyrsta skóflustunga var tekin í apríl 2025 og áætlað að fyrstu íbúðirnar (Langimói 1) verði tilbúnar til leigu í júlí 2026 og að Langimói 3 verði tilbúinn í leigu í nóvember 2026.
Í húsunum tveimur má finna tveggja til fjögurra herbergja íbúðir. Gæludýr eru heimiluð með skilyrðum í íbúðum á jarðhæð í þessu húsi. Sjá hér nánar reglur Bjargs um gæludýrahald.
Nánari upplýsingar um íbúðirnar má finna inni á vef Bjargs íbúðafélags.

Bjarg íbúðafélag er sjálfseignarstofnun rekin án hagnaðarmarkmiða. Félaginu er ætlað að tryggja tekjulágum einstaklingum og fjölskyldum á vinnumarkaði, sem eru fullgildir félagsmenn aðildarfélaga ASÍ eða BSRB, aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu. Um er að ræða svokölluð leiguheimili að norænni fyrirmynd.