Bleiki dagurinn er í dag

Hann er runninn upp, bleikasti dagur ársins! Á Bleika deginum hvetur Krabbameinsfélagið alla til að vera bleik - fyrir okkur öll, bera slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning okkar og samstöðu.

Bleikur andi svífur yfir skrifstofur félagsins í tilefni dagsins sem sést vel á fatavali starfsmanna Einingar-Iðju og VIRK og veitingum sem þeir mættu með í tilefni dagsins. Hér má sjá hluta af bleika gengi dagsins á skrifstofunni á Akureyri.

Sjá nánar hér um Bleika daginn