Breyting á akstursgjaldi og dagpeningagreiðslum

Noti starfsmaður eigin bifreið í þágu atvinnurekanda ber að greiða fyrir notkun samkvæmt kílómetragjaldi sé ekki samið um annað endurgjald. Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið akstursgjald í aksturssamningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnana frá 1. júní 2026 sem hér segir:

  • Fyrstu 10.000 km, kr. 150,00 pr. km
  • Frá 10.000 til 20.000 km, kr. 135,00 pr. km
  • Umfram 20.000 km, kr. 120,00 pr. km
Við útreikning á sérstöku gjaldi skal bæta 15% álagi á almenna gjaldið og við útreikning á torfærugjaldi skal bæta 45% álagi á almenna gjaldið. Akstursgjald þetta gildir frá og með 1. júní 2026. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 1/2025.

Dagpeningar 

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins frá 1. júní 2026 sem hér segir:

  • Gisting og fæði í einn sólarhring - kr. 56.400
  • Gisting í einn sólarhring - kr. 38.300
  • Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag - kr. 18.100
  • Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag - kr. 9.050
 

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. júní 2026. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 2/2025.

Athygli er vakin á að meginreglan er að greiða skal kostnað vegna ferðalaga innanlands, s.s. fargjöld, fæði og gistingu, eftir reikningi. Fæðiskostnaður er uppreiknaður miðað við breytingar á viðeigandi vísitölu sem útgefin er af Hagstofu Íslands.

Ferðakostnaður innanlands er reiknaður út frá verðkönnun þar sem kannað er vænt verð á algengum gististöðum, á höfuðborgarsvæðinu og utan þess. Almennt er ferðakostnaði innanlands breytt tvisvar sinnum á ári, að vori og að hausti, til þess að endurspegla árstíðarsveiflu í kostnaði gistingar.