Breyting á reglum Ríkismenntar: Aukin sveigjanleiki í náms- og kynnisferðum

Stjórn Ríkismenntar hefur samþykkt breytingu á reglum um styrki til náms- og kynnisferða. Hingað til hafa stofnanir á vegum ríkisins einungis getað fengið styrk til slíkra ferða innan- og utanlands á fjögurra ára fresti. Með breytingunni verður nú mögulegt að fá aukastyrk til námsferða innanlands, að því tilskildu að áður hafi verið nýttur styrkur til ferðar utanlands á sama fjögurra ára tímabili.

Styrkurinn getur numið allt að 90.000 krónum á einstakling á fjögurra ára fresti. Breytingin gildir í eitt ár í tilraunaskyni og verður reglan endurskoðuð að tímabilinu loknu.

Með þessu vill stjórn Ríkismenntar auka sveigjanleika og styðja enn  frekar við starfsþróun og faglegt nám. 

Sjá nánar