Stjórn Sveitamenntar hefur samþykkt breytingu á reglum um styrki til náms- og kynnisferða.
Hingað til hafa sveitarfélög og stofnanir einungis getað fengið styrk til slíkra ferða innan- og utanlands á fjögurra ára fresti. Með breytingunni verður nú mögulegt að fá aukastyrk til námsferða innanlands, að því tilskildu að áður hafi verið nýttur styrkur til ferðar utanlands á sama fjögurra ára tímabili.
Styrkurinn getur numið allt að 90.000 krónum á einstakling á fjögurra ára fresti. Breytingin gildir í eitt ár í tilraunaskyni og verður reglan endurskoðuð að tímabilinu loknu.
Með þessu vill stjórn Sveitamenntar auka sveigjanleika og styðja enn frekar við starfsþróun og faglegt nám.