Frá og með 1. maí sl tóku gildi nýjar reglur um styrki hjá LAndsmennt til fræðslusafna og stafrænnar fræðslu. Samkvæmt breytingunum verða öll upptekin fræðsla, svo sem myndbönd og annað stafrænt margmiðlunarefni, auk fræðslusafna og fræðsluappa, styrkt um 50% af reikningi í stað 90% líkt og verið hefur.
Á móti breytingunni er umsóknarferlið einfaldað. Framvegis þarf einungis að skila inn grunngögnum með umsókn og ekki lengur gerð krafa um innleiðingaráætlun, fræðsluáæltun eða greinargerð eins og áður.
Einstaklingsáskriftir sem fyrirtæki kaupa fyrir starfsmenn sína verða þó áfram styrktar um 90% af reikningi og breytast þær reglur ekki.
Markmið breytinganna er að einfalda verklag og draga úr umsýslu við umsóknir, jafnframt því sem stuðningur við mikilvæga fræðslu haldist áfram.
Breytingarnar voru samþykktar á fundi stjórnar Landsmenntar 30. apríl 2026 og tóku þegar gildi.
Landsmennt er fræðslusjóður Samtaka atvinnulífsins og verkafólks á landsbyggðinni. Aðildarfélögin eru 16 og er þar um að ræða stéttarfélög innan Starfsgreinasambands Íslands. Nánar um sjóðinn