How can I read this news in another language?
Jak mogę przeczytać tę wiadomość w innym języku?
Frá og með 1. janúar 2027 breytast reglur Landsmenntar, Ríkismenntar og Sveitamenntar um styrki vegna íslensku- og annars tungumálanáms. Eftir þann dag verður aðeins styrkt tungumálanám sem fer fram í framhaldsskóla, háskóla eða hjá viðurkenndum fræðsluaðila.
Markmið breytingarinnar er að einfalda og samræma reglur sjóðanna, þannig að sömu grunnviðmið gildi um tungumálanám og aðra styrkhæfa starfsmenntun.
Þeir fræðsluaðilar sem hafa uppfyllt hæfniviðmið sjóðanna fram að þessu teljast styrkhæfir til 31. desember 2026.
Fræðsluaðilar sem ekki hafa hlotið viðurkenningu geta sótt um hana hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu. Upplýsingar um skilyrði og umsóknarferli eru á vef ráðuneytisins: Stjórnarráðið | Viðurkenning fræðsluaðila