Breytingar á aðalstjórn

Á aðalfundum deilda sem fram fóru 5. febrúar sl. urðu þó nokkuð margar breytingar á stjórnum deildanna. Í Opinberudeildinni var m.a. kjörinn nýr formaður sem og varaformaður og í Iðnaðar- og tækjadeildinni var m.a. kjörinn nýr varaformaður. Formenn og varaformenn deilda sitja í aðalstjórn félagsins og því urðu jafnframt breytingar á henni frá sama tíma. 

Ingibjörg María, sem setið hefur sem varaformaður Opinberu deildarinnar, ákvað að gefa kost á sér í embætti formanns þar sem Guðbjörg hafði ákveðið að hætta og var kjörin. Auður Íris Eiríksdóttir sem verið hefur meðstjórnandi bauð sig fram í embætti varaformanns og var kjörin. Í Iðnaðar- og tækjadeildinni hafði Svavar Magnússon ákveðið að hætta sem varaformaður og bauð  meðstjórnandinn Baldur Helgi Árnason sig fam í embættið og náði kjöri. 

Í gær fór fram fundur í aðalstjórn þar sem Auður Íris og Baldur Helgi sátu sinn fyrsta fund. Í upphafi skrifuðu þau undir trúnaðarskjal stjórnarmanna en áður voru þau búin að fá sendar til sín siðareglur félagsins. 

Guðbjörg fyrrum formaður Opinberudeildarinnar og Svavar sem var varaformaður Iðnaðar- og tækjadeildar mættu á fundinn og fengu smá þakklætisvott frá félaginu fyrir vel unnin störf í þágu Einingar-Iðju. 

Á myndinni sem tekin var í upphafi fundar má sjá frá vinstri: Guðbjörgu, Auði Írisi, Baldur Helga og Svavar.